laugardagur, 14. september 2013

Haust.

Það er svo sannarlega komið haust. Rigning, rökkur og kertaljós er ekki svo slæm blanda, þótt það mætti að vísu vera aðeins hlýrra. Við mæðgur fórum smá göngutúr í elsku fallega Kópavogsdalnum í dag.


Autumn in Kópavogur

Autumn in Kópavogur

Autumn in Kópavogur

Autumn in Kópavogur

Autumn in Kópavogur

Autumn in Kópavogur

fimmtudagur, 12. september 2013

Dásemdar moli.

Titillinn lýsir algjörlega þessum litla fallega 15 daga gamla mola sem vinkona mín á. Í gær myndaði ég hann í bak og fyrir. Ég veit ekki hvort hann viti að hann hafi verið að módelast í dágóðan tíma því hann rétt gaf sér tíma til að sýna fallegu augun sín - annars er bara svo gott að sofa! Ekkert skemmtilegra en að fá tækifæri til að skapa svona góðar minningar :) Fleiri myndir á myndasíðunni www.flickr.com/asdisgeirs.

Sigurjónsson


Sigurjónsson


Sigurjónsson 

 
Sigurjónsson


Sigurjónsson


Sigurjónsson


Sigurjónsson


Sigurjónsson


Sigurjónsson


Sigurjónsson

mánudagur, 9. september 2013

Kökugleði.

Í sumar hef ég aðeins verið að dunda mér í kökubakstri og skreytingum. Gott áhugamál fyrir mig og margir njóta góðs af því t.d. fjölskylda og vinir. Núna síðustu helgi gerði ég brúðkaupstertu sem ég er virkilega ánægð með. Það fóru ansi margir klukkutímar í gerð skrautsins - en var svo þess virði þegar þessi dásemd var tilbúin! Er alveg ótrúlega þakklát fyrir að fá tækifæri til þess að gera og skreyta brúðkaupstertur og hjálpa til við að gera brúðkaupsdaginn ógleymanlegan.

Rustic wedding cake

Rustic wedding cake

Rustic wedding cake

föstudagur, 5. apríl 2013

Vinagull.

Þessir bræður eru svolítið mikið sætir. Fékk að mynda þá í dag. Elska hvað það er orðið bjart úti og vor í lofti. Þetta sumar verður æðis!
 
Jóel Breki 1
 
 
Jóel Breki 2
 
 
Little brother 1

 
Little brother 2
 
 
Little brother 3
 
 
Brothers
 
 
Jóel Breki 3
 
 
Jóel Breki 4

fimmtudagur, 28. júní 2012

Matarást.


Ójá. Þessi eina sanna matarást. Nautið ég veit fátt skemmtilegra en að borða og útbúa góðan mat.
Eins og stendur svo skemmtilega í einni (já ég á nokkuð margar en það er önnur saga) stjörnumerkjabókinni minni (Ást, heilsa og uppeldi stjörnumerkjanna eftir Gunnlaug Guðmundsson): "Í sambandi við mat er vert að geta þess að hið almennt geðgóða Naut verður úrillt og pirrað ef það fær ekki reglulega að borða."
Ég get sko alveg kvittað undir þetta! Hreinasti sannleikur...svo ég hef afsökun ;)

Omm nomm...

Omm nomm...

Summer!

Summer!

<3 food

fimmtudagur, 10. maí 2012

Vor.

Vorið er loksins komið og mikið er ég glöð! Núna fara sólardagarnir að verða fleiri og fleiri og þá er hægt að gera svo margt skemmtilegt. Maí er eiginlega uppáhalds mánuðurinn minn (kannski af því að þá ég afmælis hehemm...?), það er bara eitthvað svo yndislegt við það að fá aðeins meiri sól og hita - og gleði í hjartað :) Ég vona að þið munið eiga frábært sumar!

Little sunshine


Little sunshine


Birthdaycake


Svava Bernhard 2

Svava Bernhard 1


fimmtudagur, 26. apríl 2012

ÚT!

Ég veit að ég er endalaust að setja inn myndir af litlu elskunni minni - en ég bara kemst ekki hjá því að gera það ekki :) Við fórum út að leika í gær ásamt litlu nágrannavinkonu okkar. Það er alltaf jafn mikið fjör að fara út að leika og hér er kallað "ÚT!" allan liðlangan daginn!


Outside playing


Outside playing



Friends



Elínrós Diljá


My Kristín Dalrós